já... best að henda einu bloggi hérna fyrst maður kemst loksins að,,, maður vill nú ekki vera að blogga yfir vini sína

en svo maður hætti nú öllu bulli hérna þá vildi ég bara aðeins láta í mér heyra

allavega,, þá var ég á fótboltaæfingu áðan og það var líka bara svona helvíti fínt,, alveg met mæting,, vorum alveg 19 eða eitthvað og það var bara ótrúlega gaman,, alltaf gaman að sprikla með þessum kjánum
jáá,, svo fyrir þá sem ekki vita það þá var ég á Ítalíu 15. til 29. júní með rósu minni og fjölskyldu hennar og það var alveg geðveikt, ljúft líf bara að ferðast um ítalíu, skoða margt skemmtilegt eins og skakka turninn, vatíkanið, hringleikahúsið, markúsartorgið í feneyjum og margt fleira, svo bara nokkrir stranddagar inná milli þar sem maður svamlaði um eins og skata í miðjarðarhafinu og hafði það bara gott, allavega þá var þetta ótrúlega skemmtilegt,, svo var líka órtúlega fyndið að eitt kvöldið fórum við út að borða einhversstaðar lengst uppi í fjöllum og þjónninn þar var eld gamall kall í íþróttabuxum og svo var hann líka tannlaus í þokkabót svo við skyldum ekkert hvað hann sagði þegar hann byrjaði að babla eitthvað á ítölsku !! gaman að því, jájájá heldur betur það

annars er ég bara búin að vera að vinna heima í sveitinni góðu hjá mömmu og pabba

það er bara mjög fínt,, alltaf í mjöltum bara og heiskap og því sem fylgir þessu öllusaman.
svo skellti maður sér á húnavöku síðustu helgi, eða komum þarna seinnipartinn á laugardeginum og svo gistum ég, sólrún, karen, og danni. allavega, það var bara fínt, einhver kvöldvaka þarna, en við vorum samt ekkert það mikið á henni, svo vorum við eitthvað uppi á tjaldstæði og þá fóru allt í einu allir að tala um það að það væri að verða uppselt á ballið og klukkan var eitthvað aðeins meira en hálf 11 og við auðvitað rukum upp í íþróttahús til að reyna að ná miðum, en þá voru bara engir miðar þar en svo fundum við einhvern kall í bíl sem var að selja miða og það var sko ekkert að verða uppselt !! en við vorum allavega komnar með miða.. ballið var svo bara ágætt,,, hef reyndar rekist á þau betri,, en sálin var svosem bara ágæt
svo rétt áður er mercedes club byrjuðu að spila, þá létum við Ragga okkur bara hverfa og fórum á rúntinn þar sem kjellinn er komin með bílpróf,,, svo fór ég aftur á ballið og þá var sálin byrjuð að spila aftur og þar fann ég steffy og sólrúnu, en karen var horfin, og við vitum ekki ennþá hvert hún fór,, fundum hana samt aftur þegar ballið var búið, svo þetta blessaðist allt saman

jáá,,, held ég hafi þetta þá ekki lengra í bili kæru lesendur og segi bara bless og hérna,, bið bara að heilsa

p.s. kjéllinn búinn að ná bóklega hlutanum í bílprófinu

-- Sunna --